kvöld í lífi angans.
01. apríl 2007 klukkan 01:08
Hálf étin brauðsneið með marmelaði og osti situr þæg á diski og bíður örlaga sinna. Kámugir fingur fanga glas af mjólk og vandlega hella hvítum vökvanum upp í ginið. Svo er osturinn varlega tekinn af brauðinu og sætt marmelaði sleikt af með andlitinu. Því næst er þakkað fyrir sig og þvertekið fyrir að þurfa að þvo sér um hendurnar, sem leiðir af sér kapphlaup að sófanum. Hetjuleg viðbrögð pabbans koma í veg fyrir fingraför á pullurnar. En samt er ekki komist hjá refsingu, kítl sem örvar hláturtaugarnar þvílíkt að fljótlega verður að biðjast vægðar svo að manni verði sleppt. En það er til þess eins að leikurinn geti endurtekið sig.
Allt, allt of snemma er farið að minnast á háttartíma. Þá er fóturinn sko settur niður og barist gegn því óréttlæti að þurfa að fara að sofa. En eftir örlitla samninga, sem innifela nokkur nei og eitt já, er ákveðið að ein bók skuli vera lesin eftir tannburstun og fataskipti.
Og svo loksins, eftir bókalestur, vatnssopa, klósettferð, ferð inn í stofu í engum sérstökum tilgangi, knús, koss og yfirbreiðslu, þá sofnar anginn litli, svo nýr heimur geti byrjað aftur, á morgun.
Ég fann þetta pár á blaði í tiltekt í dag. ég skrifaði þetta líkast til fyrir 2-3 árum síðan. langaði bara að deila.
Kv,
Hörður S. Dan.