Könnun

Hvernig hefuru það í vinnunni?

Auglýsing

Húsabakkinn

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Júróvision já

11. maí 2007 klukkan 20:41
Ég horfði. skrýtið samt, fyrstu fyrsta lagið var spilað fjórum sinnum. hélt kannski að það væri eitthvað nýtt fyrirkomulag. en svo var mér sagt að þetta væru alveg sitthvor lögin, frá sitthvoru landinu. merkilegt að fólk svona langt í burtu frá hvort öðru getur dottið inná sama lagið svona allt í einu í sömu keppninni.

Svo kom Eiríkur. ég var allt kvöldið að reyna að veðja við fólk. þúsund kall uppá að hann komist ekki áfram. það vildi enginn veðja. samt var fólk nú almennt sammála um að þetta væri vel sungið hjá honum og flutningurinn væri almennt góður. Verst hvað lagið er lélegt. kannski ef hann hefði verið með smá latex í andlitinu þá hefði það gengið. en neinei, hann var bara rauðhærður. svo söng hann með hjartanu. kannski það hefði verið skynsamlegra að syngja með raddböndunum.

Sendum Britney Spears næst. Er hún ekki ísl... nei...humm, jæja, sendum íþróttaálfinn næst. hann getur sungið um grænmeti og hreyfingu, farið í splitt og sonna.

sem minnir mig á vampíru lagið. það var alveg eins og latarbæjar lag, bara úúúúú næstumþvíspúkí líka. þá sagðist ég gera eitthvað merkilegt (sem ég man ekki hvað var svo ví vill never nó... muhahahahaha!) ef þau enduðu lagið með því að fara í splitt. þau voru alveg með latarbæjar dansa sko. ég grét mikið úr hlátri. lítil hnáta sem sat með okkur fannst ég vera orðinn langtum merkilegra til að horfa á.

Eiríkur var nú ekkert sáttur með að komast ekki áfram. var eiginlega bara mjög fúll. Enda hefur austantjalds mafían tekið völdin í júróvision og mun ekki hleypa okkur aumu norðurlöndunum að í framtíðinni. hrikalegt. alveg hræðilegt. ég er í tárum. getur einhver hjálpað mér upp, ég er að drukkna.

kv,
íþróttaálfurinn
álfurinn
urinn
britnay spjót
flameboy
Hörður S. Dan.
Hörður S. Dan.
Zikco
 
Ég nennti ekki einu sinni að horfa á það.
Gæði þessara "lagasmiðja" (tónlistarmysþyrmingar myndi ég frekar kalla það)
hefur hrakað gífurlega síðustu árin, finnst mér. :/
12. maí 2007 klukkan 02:45
það var reyndar eitt gott lag. svona klassískt blúslag, sungið vel, kom eins og skrattinn úr sauðalæknum. þá fattaði maður akkurat hvað þetta er fast í 1980.
12. maí 2007 klukkan 10:12
vá nennti minnst að horfa á þetta :P finnst þetta bara orðið svo leiðinlegt eikkað :P alltaf sömu lögin eða þá að lögin versni. hörmung....ef það mindi eikker reyna að setja smá fútt í þessa keppni gera eikkað annað en að syngja breytt abbalög eða eitthvað verra þá mindi maður nú kannski reyna að glíma við eina keppni :P hehe...þangað til leyfi ég hinum vitleysingunum að horfa á þetta og þeir koma alltaf skemmdari og skemmdari útúr þessu :P hehe :)
er þetta alveg ágætis tjáning :D
kveðjur frá mæðgunum miklu ;) og ég held að Alex sé farin að sakna stóra "bróður" síns ;) híhí :)
15. maí 2007 klukkan 12:36
Zikco
 
Eina lagið sem mér hefur fundist gott, var "Hard Rock Hallelujah" med Lordi í fyrra. :P
15. maí 2007 klukkan 14:20
Hlín
 
ertu alveg eyðilagður eftir júróvisjón, ekkert blogg ???
23. maí 2007 klukkan 11:49

Skrifa athugasemd