Könnun

Hvernig hefuru það í vinnunni?

Auglýsing

Húsabakkinn

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

FM 957

29. mars 2007 klukkan 09:03
ég var að hlusta á fm. það var verið að tala um mismunandi týpur karlmanna. þið vitið, þögla týpan, karlmannlega týpan, gamaldags týpan, mjúka týpan, eða hvað þetta allt kallast. það var kona sem var að babbla um þetta.

mig langaði til að hringja inn og benda á að það væri erfitt að flokka manneskjuna, þetta ýtti undir stereótýtískt viðhorf samfélagsins gagnvart hlutverkaskipan kynjana, að svona fordæmi ýtti undir fordæmingu, akkurat það sem konur eru að berjast gegn. þið vitið, að konan eigi að vera húsmóðir eða undirgefinn eða kvenleg eða hvað sem samfélaginu dettur í hug. svona hugsun er mjög svipuð því þegar verið var að ákveða persónuleika eftir höfuðlagi hérna í den. ef það á að losa sig við þetta viðhorf gagnvart konum, þá þá þarf líka að gera það gagnvart okkur köllunum. allt fólk er bara manneskjur fyrst og fremst, og þær eru nú einu sinni eins fjölbreyttar eins og þær eru margar.

en ég hætti við, ég er með of framstætt enni til að hafa áhuga á því að hringja í svona FM þátt.

Hörður S. Dan.
3 athugasemdir

að sækja um vinnu

14. mars 2007 klukkan 11:36
Ég sótti um vinnu hjá Nýherja.

mætti á svæðið gallvaskur. bað einhvern jólasveininn þarna um starfsmannastjóra. hann skoppaði smá og kom svo aftur niður á jörðina með starfsmannastjóra sem heitir Jón.

Jón:   sæll og blessaður.
ég:    sælir, ég kom hingað útaf starfi sem ég var að sækja um hjá ykkur, bara svona sjá aðstæður og hvernig vinna þetta væri.
Jón:   já skil.
ég:   ég veit að þetta hljómar hálf kjánalega, en geirvarta.
Jón:   ha?
ég:   þú heyrðir hvað ég sagði, ekki snúa útúr.
Jón:   útúr hverju?
ég:   þegar þú lætur svona er ég bara alls ekkert viss um að mig langi að vinna hérna.

svo fór ég heim, úr fötunum, málaði mig gulan og kom aftur með skilti sem á stóð "gleðilega páska", og hljóp um Nýherja eins og sætur páskaungi.

það störðu allir á mig, helvítis dónarnir.

en hvað gerir maður ekki til að fá vinnu.


Hörður S. Dan.
10 athugasemdir

Púúkarett

12. mars 2007 klukkan 12:14
Parketið er komið. það er komið á gólfið. liggur reyndar bara þarna. gerir ekkert meira en það sosum. jú nema að betrumbæta andrúmsloft og birtu. það er alveg eitthvað til að tala um.

já ég er bara nokkuð sáttur með smíðarnar. get stoltur haldið því fram að ég sé handlaginn gaur. er meira að segja ekki frá því að ég sé nokkuð klár í smíðum, næst held ég að ég smíði þyrlu úr tré. svona eins og davinci. hún þarf ekkert að virka, ég meina ekki virkaði hún hjá honum. ég bý bara til eitthvað stórt flykki og fleygi því fram af esjunni. get sett apa í flugstrjórasætið, svona til að gera þetta spennandi.



Hörður S. Dan.
7 athugasemdir

parkarett

01. mars 2007 klukkan 21:01
ég er að parketleggja heima hjá mér.

svona smelluparket, eða flotparket, eða hvað fólk vill kalla það. það var keypt svona ódýrt drasl og ég bauðst til að leggja það. alveg eikar og læti, bara fjalirnar eru helmingi styttri og svo er þetta ekki svona flúbb til að festa á hliðunum, og svo bara berja saman endana. nei nei, ég þarf að berja allt helvítis draslið saman. svo eru fjalirnar bognar. glatað. samt ekki. ég er eiginlega voða glaður að vera loksins að verða kominn með gólf sem segir sex (það er sko alþjóðlega parket talan. parket segja þetta oft öðru hvoru stundum þegar mikið liggur við sem er ekki oft og eiginlega aldrei).

ég hef ákveðið að nefna eldavélina Bella. allavega þegar ég er að elda pasta. þegar ég elda eitthvað annað mun ég líkast til kalla hana eldavél. eða ekki neitt. á reyndar eftir að bera þetta undir hinn vitleysinginn með kynþroskaaldur á heimilinu... eða ég bara ég skíri hana svo enginn sjái (nei hörður! hlustaðu á innri rödd þina! Ert það ekki þú? jah, reyndar... ok, hvað? Hvað? já átti ég ekki að hlusta? já meinar. ég veitiggi, hélt ég ætti bara að segja þetta og þá myndu allir fatta eitthvað siðferðiskennt. ég er engu nær. ekki ég heldur. fyrirgefðu. ég fer bara að horfa á beivats.).

fleeeira var það ekki finnst mér.

kv,
Hörður S. Dan.


Hörður S. Dan.
2 athugasemdir